Höfuðból 111 er 115 fermetra hús sem við byggðum fyrir viðskiptavin, þannig að húsið var selt fyrirfram. Húsið stendur á einstökum útsýnisstað við ána og er með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi og að sjálfsögðu flottu alrými með eldhúsi og stofu. Einnig er í húsinu 55 fermetra milliloft. Húsið er klætt að innan með hvíttuðum panel og á því er parketdúkur.






















