Höfuðból 112

Höfuðból 112

Option 1
Style:
Option 2
Style:
Option 3
Style:

Verkefnismyndir

Upplýsingar um verkefni

Fyrsta húsið okkar var byggt 2021 en það er 205 fm með bílskúr. Húsið stendur á fallegum stað með útsýni yfir ána og gilið. Húsið er í svokölluðum funky´s stíl og er klætt með standandi Lerki og Cembrit steinfíber flísum. Húsið seldist áður en það fór formlega á sölu og eru kaupendur í skýjunum með það og auðvitað umhverfið. Hér getur þú séð fallegar myndir af því, bæði að utan og innan. 

Í húsi tvö, fórum við allt aðra leið og gerðum það í svokölluðum Barnhouse style. Húsið er 168.5 fm og er á 4.8 hektara spildu með stórkostlegu útsýni til fjalla og yfir ána. Húsið er með litaðri liggjandi furu, 130 fm sólpalli með fallegu handriði úr tvöföldu öryggisgleri. Við notuðum úthagatorf til að tengja húsið aftur við náttúrulegt umhverfi þess. Hér getur þú séð fallegar myndir af húsinu og umhverfi þess.  

Þriðja húsið sem er selt er enn óbyggt en framkvæmdir þegar hafnar og áætlað að afhenda það tilbúið til innréttingar í september 2025. Þetta er afar fallegt 311 fm hús sem er í raun systurhús Rangársléttu 3, en hefur verið stækkað og lagað að óskum kaupenda. Í því verða 6 svefnherbergi, 3 baðherbergi og bílskúr. Húsið er á lóð 9, sem er innst í landinu og niður við ána. Einstaklega flott staðsetning með mikilli víðsýni yfir fjöllin í nágrenninu og að sjálfsögðu yfir ána. Hér getið þið séð nokkrar 3D myndir sem við létum gera fyrir okkur.  

Verkefnaskipulag pdf

Hér finnur þú allar upplýsingar um verkefnið í PDF skjölum