Þetta fallega 311 fm hús sem er í raun systurhús Rangársléttu 3, en hefur verið stækkað og lagað að óskum kaupenda. Í því eru 6 svefnherbergi, 3 baðherbergi og bílskúr. Húsið er á lóð 9, sem er innst í landinu og niður við ána. Einstaklega flott staðsetning með mikilli víðsýni yfir fjöllin í nágrenninu og að sjálfsögðu yfir ána. Hér getið þið séð nokkrar 3D myndir sem við létum gera fyrir okkur en kaupendur komu að allri hönnuninni.



























