Um okkur

Um okkur

Strákarnir

Heklusýn ehf. er með aðeins aðra nálgun en önnur byggingarfyrirtæki. Fyrir utan það að leggja mikla áherslu á gæði og vönduð vinnubrögð, eins og vonandi flest fyrirtæki gera, þá erum við ekki að byggja og selja hús á hefðbundnum 0,3 – 1 hektara lóðum, heldur stórum landspildum sem eru allt að 5 hektarar. Þannig sköpum við þá tilfinningu að viðskiptavinir okkar séu ekki bara að kaupa sumarhús eða heilsárshús, heldur sinn eigin herragarð. 

Eigendur Heklusýnar ehf. eru hjónin Skúli K. Skúlason og Sigurlaug S. Einarsdóttir og hjónin Sigurður E. Guðmundsson og Sunneva Eiðsdóttir. 

Heklusýn hefur á að skipa vösku smíðateymi, ásamt samningi við alla helstu iðnmeistara eins og fyrir pípulagnir, rafmagn og málningu. 

Skúli og Siggi eru góðir vinir sem vinna mikið saman flesta daga og sameiginlega fara þeir yfir alla verkþætti og í flestum tilfellum vinna sjálfir við húsin ásamt smíðateyminu. 

Heklusýn ehf. fjármagnar allar sínar framkvæmdir og hús, án aðkomu banka eða annara lánastofna.

 

Skúli Kristófer | Heklusýn
Skúli Kristófer
Skúli er með áratuga reynslu í sölu- og markaðsmálum ásamt því að vera bifvélavirki og þúsundþjalasmiður. Skúli var framkvæmdastjóri hjá BL ehf. til ársins 2019 en hefur frá þeim tíma unnið við Heklusýn og önnur fjárfestingaverkefni.

Siggi húsasmiður | Heklusýn
Sigurður Einar
Siggi, eins og hann er gjarnan kallaður, er húsasmíðameistari. Siggi hefur áratuga reynslu í byggingu og viðhaldi húsa en hann hefur einkum unnið hér í Landsveitinni og hefur á að skipa 6-8 manna smíðateymi sem allir búa í sveitinni, eða næsta nágrenni. .
Hús sem við eigum
0
Hús í byggingu
0
Hús Selt
0