Heklusýn kynnir þetta magnaða hús sem er óbyggt en til sölu fyrir þá sem líst vel á.
Við höfum unnið hörðum höndum með okkar frábæra hönnuði Halla Friðgeirs á undanförnum mánuðum við hönnun á þessu stóra og glæsilega húsi sem er eiginlega allt öðruvísi en við höfum áður gert.
Húsið er hannað fyrir lóð 10 sem er ein glæsilegasta lóðin við Ytri Rangá, a.m.k. á okkar svæði og er með einstakri náttúru og útsýni yfir ána. Húsið verður 243 fermetrar með bílskúrnum en aukalega er hægt að hafa 15 fm saunahús á pallinum við heitapottinn. Lóðin er 2.24 hektara eða 22.400,- fermetrar sem ættu að tryggja gott næði og óhindrað útsýni yfir ána og til fjalla. Meiningin er að hefja framkvæmdir 2026 en fram að þeim tíma er hægt að skipta út húsi ef áhugasamur kaupandi vill þessa lóð en hanna sitt eigið hús. .












