Við höfum unnið hörðum höndum með okkar frábæra hönnuði Halla Friðgeirs á undanförnum mánuðum við hönnun á þessu stóra og glæsilega húsi sem er eiginlega allt öðruvísi en við höfum áður gert.
Húsið er hannað fyrir lóð 10 sem er ein glæsilegasta lóðin við Ytri Rangá, a.m.k. á okkar svæði og er með einstakri náttúru og útsýni yfir ána. Húsið verður 243 fermetrar með bílskúrnum en aukalega er hægt að hafa 15 fm saunahús á pallinum við heitapottinn. Lóðin er 2.24 hektara eða 22.400,- fermetrar sem ættu að tryggja gott næði og óhindrað útsýni um aldur og ævi. Meiningin er að hefja framkvæmdir vorið 2026 en fram að þeim tíma er hægt að skipta út húsi ef áhugasamur kaupandi vill þessa lóð en hanna sitt eigið hús.
Húsið er ekki selt en nokkur áhugi hefur verið í kringum það þó ekkert sé í hendi.
Myndirnar eru 3D ,,visualisation” sem eru gerðar af góðum samstarfsaðila okkar erlendis. Myndirnar sýna það eins og það verður að utan og hugsanlega að innan þ.e. ef kaupandi vill nota þá innri hönnun.
Húsið er á tveimur stöllum, þ.e. svefnherbergisálman stendur hærra með fjórum þrepum upp í það. Húsið er klætt með grárri Ruukki stálkæðningu og ljósum Aski.
Húsið er með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi og geymslu, ásamt bílskúr. Glæsileg forstofa og stórt alrými með eldhúsi og stofu.
Allar nánari upplýsingar hjá heklusyn@heklusyn.is eða bara hjá Skúla K. í síma 822-8080.












