Heklusýn kynnir fallegt 146 fm heilsárshús ásamt umtalsverðu landi eða 2.9 hekturum. Húsið stendur hátt í fallegu hrauni, umlukið miklum gróðri, aðallega birkitrjám, ýmsum víðitegundum og mosa en fjöldi annarra villtra planta er þar einnig að finna. Frá húsinu er fagurt víðsýni, m.a til Heklu, Búrfells, Bjólfells, Tindfjalla, Selsundsfjalls, Eyjafjallajökuls og Þríhyrnings í Fljótshlíð. Um er að ræða einstaka eign á sérlega fallegu landi með útsýni yfir Ytri-Rangá. Húsið er með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, stóru alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu.
Sólpallur til suðurs, sem er yfirbyggður að hluta, þ.e. þremur yfirbyggðum innskotum sem veita mikið skjól.
Það eru 16 km að afleggjaranum inn í Landmannalaugar og þaðan áfram inn á fallegasta hluta hálendis íslands, þ.e. Fjallabak. Stutt í sundlaugina á Laugalandi, golfvöllur á Hellu og góður veitingastaður á Landhóteli, svo eitthvað sé nefnt.
Aðeins verða 12-14 hús byggð á Rangársléttu, þannig að hvert hús fær mikið land og þar með mikið næði og fjarlægð í milli húsa. Þetta er staður og hús fyrir þá sem vilja vera út af fyrir sig með villta náttúru allt í kring.
Afhending og verð.
Hægt er að fá húsið afhent fullbúið. Húsið er verðlagt á 109 milljónir miðað við frágenginni lóð og útilýsingu, tilbúið til innréttinga að innan og málað eina umferð. Húsið er tilbúið til innréttinga. Húsið er með gólfhita sem stýrt er af mjög vönduðu varmadælukerfi frá Nibe og er því mun ódýrara að hita það en með hefðbundinni rafmagnskyndingu. Hús og þak er klætt með lituðu stáli og innskot með viðarklæðningu. Gluggar og hurðar eru ál/tré.
Athugið að inn í verði hússins eru 2.9 hektarar af gullfallegu landi með miklu útsýni til fjalla og yfir ána.
Ef þú ert að leita af fallegu húsi á stórri spildu í einstakri náttúru þar sem þú nýtur kyrrðar og fjarlægðar frá öðrum, þá er Heklusýn fyrir þig.
Nánari upplýsingar færðu hjá Skúla K. Skúlasyni Heklusýn. S. 822-8080.
Eða Styrmi Bjarti Karlssyni hjá Croisette – Knight Frank í síma 899-9090, styrmir@croisette.is


























